10.7.2008 | 16:02
Er þetta virkilega frétt??
Á hverjum degi látast þúsundir manna á eðlilegan hátt um allan heim, í heimahúsum, við vinnu eða í fríum. Af hverju er það frétt þótt aldraður hjartasjúklingur látist um borð í skemmtiferðaskipi? Er gúrkan algjör eða er vankunnáttu í fréttamennsku um að kenna??
Andlát um borð í skemmtiferðaskipi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ingimar E
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Jamm, það fór fyrst allt í gang á fréttastofum landsins vegna mikils viðbúnaðar lögreglu. Svo fóru menn á svæðið og í ljós kom að einhver hafði hugsanlega dáið. Svo var verið að reyna að finna út hverjir færu um borð, hver hefði dáið, hvort um morð eða sjálfsvíg væri að ræða. Aðeins eftir allt þetta ferli kom í ljós að þetta var ekkert stórmál.
Það hefði því verið hálf kjánalegt að segja landsmönnum að hugsanlega væri eitthvað svakalegt að gerast og drepa svo bara fréttina - þetta er bara "follow-up" eftir "false-alarm" svo ég tali fallegt mál.
Gunnar Hrafn Jónsson (IP-tala skráð) 10.7.2008 kl. 16:13
Jahá, það skýrir ýmislegt, hefði kannski verið gáfulegt að nefna það í þessari frétt, undirritaðan vantaði forsöguna.
Ingimar Eydal, 10.7.2008 kl. 16:15
Er maður sem sagt hvergi óhultur?
Emil Örn Kristjánsson, 10.7.2008 kl. 16:31
Hef nú grun um að fyrri fréttin hafi líka verið einhver uppsuða í blaðamönnum, það er jú þannig að þegar fólk deyr óvænt og utan sjúkrastofnanna þá rannsakar lögregla málið, og í þessu tilfelli leitar skipið til lögreglunnar hér vegna þess að það er hér við land. Hér hefur því einhver gert hænu úr upphaflegu fjöðrini.
Einar Þór Strand, 10.7.2008 kl. 16:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.